Esja upp ađ steiniJóhannes Egilsson
Sveifluhálsinn, afmćlisganga GFF 27. ágúst 2011Jóhannes Egilsson
Afmælisganga Fallega fólksins var farinn á sveifluhálsinn, lagt af stað frá Bónus á Völlunum Hafnarfirði kl 10 að morgni, ekið sem leið lá eftir Krísuvíkurveginum að Selvoginum, þar var lagt af stað og gengið í gegnum háhitasvæðið og er þetta magnað, upp á sveifluhálsinn og svo gengið í norð norð/austur eftir honum, æðislega flott og skemmtilegt svæði sem er allveg þess virði að ganga aftur :) þegar við komum að Miðdegishnúknum þá gengum við niður á Hofmannaflöt og þar inn á Ketilstíginn og eftir honum til baka að Selvogi :)Frábær ganga í frábærum félagsskap :)
vegalengd 11,6 km
Tími um 6 tímar með bílferðum :)
Gangan um hringvegurinn Kerlingarfjöllum 15. - 19. júlí 2011Jóhannes Egilsson
Dagur 1.
Föstudagur 15. júlí runninn upp, drifið sig í að taka til og setja það síðasta niður í töskur og út í bíl með allt dótið, renndi af stað til að ná í Helgu, Soffíu og Bjössa, þegar búið var að troða öllu dótinu í bílinn var rennt af stað út úr bænum og var klukkan þá í kring um fjögur :-)
Brunuðum upp í Mosfellsbæ þar sem við ákváðum að fara Mosfellsdalinn í gegnum Þingvelli og nýja veginn yfir Lyngdalsheiðina og þaðan upp að Gullfoss og Geysi í stað þess að fara suðurlandsveginn.
Stoppuðum á Geysi til að taka eldsneyti og ætluðum að borða þar líka en það var ekkert varið í matinn þar, fréttum af að það væri hægt að fá eitthvað að borða á Gullfosskaffi þannig við drifum okkur þangað uppeftir og þá var í boði kaffimeðlæti og Kjötsúpa, fengum okkur þessa yndislegu kjötsúpu og biðum eftir nokkrum ferðafélögum þarna :)
Héldum svo áfram upp að kerlingarfjöllum, stuttu eftir að við ókum af Kjalvegi og inn eftir Kerlingarfjallavegi þá komum við að litlum en kraftmiklum foss sem heitir Gýgjarfoss, stoppuðum þar smá til að taka myndir og rétta úr okkur :) héldum svo áfram í smá stund og þá allt í einu opnaðist þessi líka paradís sem er svæðið í Ásgarði en þangað komum við eitthvað rétt fyrir átta, hittum Pál sem ég var búinn að vera í sambandi við og skálafólkið var upp á lofti í aðalskálanum og við hin drifum okkur niður í tjaldsvæðið til að reisa upp tjaldbúðirnar :) Hermann og Elín voru mætt og búin að reisa tjaldvagninn sinn :)
Þegar búið var að reisa tjöld þá ákvað Helga að rölta og prófa heitapottinn sem er inn í gilinu, en það er um 20 mínútna gangur þangað.
Jafnt og þétt þá fjölgaði fallega fólkinu og mættu þeir síðustu um tvö leitið um nóttina :)
Dagur 2.
Laugardagur 16. júlí rann upp með björtu veðri en dálítillri golu, allir voru mjög spenntir að leggja af stað í þessa fyrstu dagleið :) þegar við Trausti vorum búnir að fara og hitta Pál til að ræða um hvaða leið væri skynsamlegast að ganga yfir fjöllin (því við ætluðum að fara óvissuferð fyrsta daginn :)) þá var allt klárt til að leggja af stað en planið var að leggja af stað kl tíu, safnaðist fólk saman fyrir framan aðalskálan og svo var lagt af stað :)
Einn úr hópnum hann Elli ætlaðin að fá far með trússinum en ég fékk hann til að keyra bílinn minn á eftir trússinum svona til öryggis, einnig var hann notaður til að trússa farangurinn í leiðinni :)
Gengum við upp frá skálanum og upp á veginn undir Ásgarðsfjalli, veg sem liggur upp að gamla skíðasvæðinu í Kerlingarfjöllum, gengum við eftir honum og var þetta dálítið erfitt til að byrja með þar sem ég þarf alltaf smá tíma til að koma mér í gang :)
Þegar við vorum komin langleiðina af veginum þá blasti þetta frábæra útsýni yfir hverasvæðið sem er í fjöllunum beint á móti Fannborginni, brjkálæðislega flottir litir og landslagið ekki síðra :) héldum svo áfram upp að bílastæðinu við skíðasvæðið og þar var fyrsta nestispásan tekin :)
Sumum leist nú ekki allt of vel á þessa fjallgöngu sem blasti við því stefnan var tekin á að ganga upp á Fannborg 1440 m hátt og þaðan yfir á Snækoll 1480 m hátt en við höfðum verið í um 700 metrum þegar við lögðum af stað frá tjaldstæðunum :-/ Við Trausti ákváðum í kaffistoppinu að vera ekkert að reyna fara framhjá eða aðra leið en bara beint upp, gekk gangan líka mjög vel, fórum mjög hægt þannig maður fann ekkert fyrir þessari hækkun :-) og útsýnið vá æðislegt :)
Þegar allir voru búnir að taka nægju sína af myndum og njóta útsýnisins þá var haldið áfram og niður af Fannborginni, þegar við vorum í hlíðinni milli hennar og Snækolls þá var ákveðið að skipta hópnum og fórum við 11 saman upp á Snækoll, hin héldu niður í dalina og myndum við hittast svo í skarðinu fyrir neðan Snótina eða í skálanum í Kisubotnum.
Drifum við okkur af stað og röltum við upp á úrill og þaðan á Snækoll sem er um 1480 m hár, planið var að ganga svo þaðan á Loðmund ef við sæjum góða leið á hann, við stoppuðum og tókum nestispásu í gilinu milli Snækolls og Snótar og þar var ákveðið að ekki yrði farið á Loðmund því það leit út fyrir klettaklifur sem við vorum ekki tilbúin í en í staðin þá var ákveðið að fara upp á Snótina sem er 1420 m. há í stað þess að ganga niður í dalinn úr gilinu, snótin er MJÖG grýtt af steinflögum og gekk ferðin upp hægt en komumst við svo öll á endanum upp :) og útsýnið var bara æðislegt :) niðurferðin var aftur á móti ekki eins góð, var erfitt að fóta sig en á endanum komumst við svo niður :)
Héðan var leiðin bara létt, smá hækkun en annars bara niður og niður, þegar við fórum að nálgast Kisubotna þá gengum við niður við hliðina á gljúfrinu sem er mjög fallegt, þarna var ég farinn að finna til í vinstri fætinum og hef ég líklegast beitt mér vitlaust í grjótinu á Snótinni :-( komum svo niður í skála milli 6 og 7.
Drifið í að tjalda og svo farið í að elda pottréttin sem við Bjössi vorum búnir að undirbúa :)
Eftir matinn var fengið sér smá fjallakakó með 80% Stro :-)
Skriðið í tjald um 10 leitið og farið að sofa :)
Gönguvegalengd okkar ca. 14,4 km hinir gengu um 16 km.
Göngutími rúmir 8 tímar
Dagur 3.
Sunnudagur 17. júlí.
Vaknað um átta leytið og drifið í að pakka saman og undirbúa daginn, fóturinn ágætur og blíðskaparveður :)
klukkan tíu þá var lagt af stað og gengið yfir í skálann Klakk sem var ca. 12 km ganga, gengum með ánni úr gljúfrinu fyrir ofan Kisubotnana, var hún lítil og ekkert þurfti að vaða, þegar við vorum búin að ganga rúmlega tvo km þá komum við í Neðri Kisubotnana þar sem skálinn hafði verið árinu áður, gengum áfram meðfram kisufelli yfir að hlíðunum hinum megin við botnana, þar komum við að læk þar sem sumir stikluðu yfir en aðrir fóru í vaðskóna og óðu yfir í rólegheitunum :) smá stopp meðan fólk var að þurrka sig og klæða aftur í gönguskóna, haldið áfram upp hlíðina og var ákveðið að halda áfram þar til við myndum finna græna laut til að nestast í :-) eftir um 1,5 km rölt þá var stoppað í ágætis skjóli en ekki var það grænt :-/ nestuðumst og slökuðum á í smá tíma :)
Héldum áfram upp hlíðina og var stefnan sett á að skoða Kisubotnagljúfur :) vá það var magnað að skoða það, og þar fundum við þennan líka æðislega grasbala til að leggjast í og njóta útsýnisins yfir gljúfrið og alla leið upp á fjallið Gylfa :)
Eftir góða pásu þá var haldið af stað og gengið í slóða, þarna voru nokkrar sprænur sem þurfti að stikla yfir og var það ekki mikil töf á þó sumir hafi lent í sandbleytu og sokkið vel :-/
Áfram var haldið og er umhverfið ekkert sérstakt hérna á þessu svæði en ágætis færi, þegar við vorum komin að fellinu beint á móti Klakk (á milli Rauðkolla og Klakkshól) þá tókum við okkur smá nestispásu og þar byrjaði að rigna á okkur, gerðum okkur klár og gengum svo að ánni við klakk, þar var síðasta áin þennan daginn og stikluðu flestir yfir en einhverjir settu á sig vaðskóna og óðu yfir :) síðast spölurinn upp að skála var sléttur og þægilegur :) Þegar komið var í skála þá var farið í að koma sér fyrir og gera klárt, fékk ég meðhöndlun hjá Erlu vegna verkja í vinstra hné, aðrir komu sér vel fyrir út í horni og létu færa sér heitt "Kakó" meðan aðrir fóru að skoða myndir og var andinn mjög góður í hópnum :)
Borðað og skemmt sér vel um kvöldið og allir hressir og kátir þó sumir hafi verið hressari en aðrir :-)
Gönguvegalengd 11,8 km
Göngutími um 6-7 tímar
Dagur 4.
Mánudagur 18. júlí
Veðrið bjart og logn meðan við vorum að pakka saman, ég var ekkert að stressa mig því ég var búinn að skipta við Ella, hann ætlaði að ganga en ég að aka bílnum mínum til baka, Soffía og Eydís ákváðu að fara með mér því þær voru úr lagi gengnar líka ;)
Hópurinn lagði svo af stað um 9 leytið en við 3 dunduðum okkur við að raða inn í bílinn trússdótinu, svo tók við bið eftir að Páll Trússari kæmi en hann var búinn að áætla vera hjá okkur um 11 leytið, þegar hann kom þá var dótinu hlaðið í bílinn og lagt af stað í átt að Setrinu, fórum nokkuð rólega og gekk ferðin mjög vel :)
Þegar við komum í Ásgarð aftur þá tókum við dótið úr bílunum og tjölduðum nokkrum tjöldum, svo gengum við inn gilið inn af skálunum því okkur langaði til að skoða heita pottin þar :)
Þegar við vorum á leiðinni til baka þá hringdi Trausti og sagði að það væri korter í að þau yrðu við heita pottinn sem er á hverasvæðinu upp við Fannborgina, drifum við okkur því við vorum með sundföt fyrir sum og einnig nokkrar guðaveigar :) en þegar við komum að pottinum þá var hann kaldur :-( haldið til baka og tekið á móti göngufólkinu :)
Kvöldmaturinn samanstóð af grillmat ýmsum og svo var skriðið inn í sameiginlega skálaaðstöðu þar sem hægt var að sitja inni og hafa gaman :)
Frábær dagur þó ekki hafi ég gengið :)
Dagur 5.
Þriðjudagur 19. júlí
Lagt af stað um hádegi og ekið sem leið lá til baka að Gullfoss, en við sandánna þá stoppuðum við til að ganga í um 20 mín eftir árfarvegi inn að dalverpi sem heitir Kór, þar er gróðurparadís og heimili huldufólks, stoppuðum stutta stund og snérum svo við í bílana, fengum á okkur úrhelli á leiðinni en það var bara notalegt :)
Stutt nammistopp tekið á Gullfoss því við ætluðum að fara og skoða hann hinum megin frá, það var mögnuð upplifun að sjá hann þeim megin :) fórum svo þaðan niður í Flúðir og fengum okkur sveitta borgara :) þarna skildumst við að því sumir ætluðu á Selfoss, aðrir beint í bæinn og ég ætlaði að koma við í bústaðnum hjá foreldrum mínum í Grímsnesinu :)
Þetta var frábært ferðalag með frábæru fólki og á eftir að lifa lengi í huga mínum :)
Búrfell Grímsnesi gengiđ í útilegugönguhelgi GFF 1-3 júlí 2011Jóhannes Egilsson
Helgina 1-3 júlí var ég með útilegugönguhelgi fyrir GFF félaga upp í bústað foreldra minna í Vinaminni Grímsnesi, um 30 manns mættu uppeftir á föstudeginum og var því tekið rólega þá um kvöldið :)Kl. 10:00 morguninnn eftir var lagt af stað til að ganga á Búrfell í Grímsnesi, planið var að ganga upp sunnanmegin, upp á topp og svo hringin kringum vatnið og niður, veðrið var flott, hiti og bjart en ekki sól, byrjaði þetta nokkuð bratt og tók það dálítið á :-/ en áfram héldum við og eftir góða stund þá komumst við upp á brúnina, þá var haldið áfram og upp á toppinn. Þegar við vorum búin að dást að útsýninu smá stund þá var haldið niður í átt að vatninu til að fá skjól fyrir rokinu sem var komið, fundum við smá skúta með útsýni í suður og yfir vatnið, þar var tekið nestispása :-)
Héldum af stað niður að vatni, Bjössi ákvað að synda yfir og gerði hann það :) niðurferðin gekk vel og fengum við smá rigningarskúr á okkur á leiðinni niður, komum við niður af fjalli kl 13:35, héldum þaðan í sund í Borg í Grímsnesi þar sem var slappað af í heitapottinum og auðvitað var rennibrautin prófuð :)
Haldið upp í bústað og farið í að undirbúa kvöldið en það voru um 50 manns sem átti eftir að grilla fyrir :)
Kvöldið tókst stórkostlega, byrjað var á forrétt sem var sett á borðin (epli, bananar og appelsínur) þar sem hver og einn gat nartað eins og hann vildi :)
Svo tók við aðalrétturinn sem samanstóð af 7 lambalærum og meðlæti :)
Í eftirrétt voru ferskar perur grillaðar með snickers, ís, rjóma og sósum nammi namm :) svo var hent ´ða borð ostum og snakki :)
Reykjavegur 4 hlutiJóhannes Egilsson
Loksins komst ég aftur af stað í Reykjavegsgönguna :)Fór í morgunn með fallegu fólki að ganga fjórða hluta Reykjavegar sem telst vera 19 km langur, hittumst á bílastæði við Fjarðarkaup Kristín, Trausti, Gulli, Birna Sig. og Rúnar, sameinuðumst þar í bíla og skutluðum tveimur upp í Kaldársel og fórum svo á hinum tveimur inn að Djúpavatni þar sem við lögðum af stað og gengum þaðan yfir að Kaldárseli, gengum við þetta á 5 tímum og 35 mínútum í mjög góðu veðri, smá sól, smá dropar og restin bara frábær :-)
Rölt um OddafelliđJóhannes Egilsson
Fórum 5 og gengum eftir Oddafellinu í frábæru vorveðri, sól en smá vindurAkstur 30 mín hvor leið
Ganga 2 tímar og 28 mínútur
Reikjanesvegur fyrsti áfangi af sjöJóhannes Egilsson
Gönguhópur Fallega fólksins ákvað að ganga Reykjaveginn í vetur, taka hann í 7 áföngum og einn áfanga í mánuði :)Fyrsti hluti var svo genginn laugardaginn 2. október. Við vorum 7 félagar sem hitumst á bílaplaninu hjá Fjarðarkaup, sameinuðumst þar í bíla og lögðum af stað kl 9:00, ekið var upp að Bláa Lóninu og aðeins lengra eða upp að Eldvörpum í smá rigningarúða en þar voru tveir bílar skildir eftir og sameinast í þann þriðja til að aka að Reykjanesvita. Þegar við komum þangað þá var farið í að gera sig klár og skoða aðeins umhverfið, en þegar við lögðum svo af stað kl 10:25 þá komu síðustu droparnir úr lofti og var þurrt það sem eftir var göngu :-) drifum okkur strax að ganga upp hólinn sem fyrsti vitinn hafði staðið en hann er hruninn niður í sjó, gengum svo upp að núverandi vita og má segja að það hafi verið mesta hækkun sem við fórum í þessari göngu :-)
Fylgdum svo bláu stikunum sem eru merki Reykjavegar og var Trausti (fararstjórinn í þessum ferðum) að vísu með leiðina Trakkaða í GPS-inum sínum, gengum fram hjá Reykjanesvirkjun og meðfram ströndinni að Stóru Sandvík en þar var sest niður í matarpásu :-)
Eftir notalega stund þá var haldið áfram og leitað að næstu stiku sem fanst svo eftir smá tíma en trackið var ekki allveg rétt.
Landslagið sem við vorum búin að ganga eftir var hraun og sandur, en núna breyttist það í sand og grjót, gengum áfram eftir mjög skemmtilegri leið þar til við komum að vörðu þar sem Reykjavegurinn sameinaðist Presstígnum, þar vorum við komin í þúfur og gróður og gengum við í þannig landslagi stóran hluta af restinni af leiðinni, stoppuðum svo við Einiberjahól í næstu nestispásu, héldum svo áfram og komum inn á svæði með mosa og hrauni og var það mjög flott umhverfi, komum svo að bílunum kl. 16:05 eftir frábæra göngu. Eftir teygjur og smá pásu þá var lagt af stað til að ná í bílinn hennar Erlu sem við skildum eftir við Reykjanesvita, við vorum ekki búin að aka nema í ca 5 mín þegar kom úrhellisrigning þannig við vorum nokkuð heppin með veðrið í göngunni sem var bjart með smá golu :-) svo var stoppað og skoðað gjánna sem skilur að Evrópu og Ameríkuflekana og svo brunað beint í bæinn :-)
Gönguvegalengd 16,7 km
Göngutími 5 tímar og 40 mín
Aksturstími 3 tímar tuttugu mín
Skálafell á HellisheiđiJóhannes Egilsson
Halli boðaði nýja gönguhópinn í göngu á Skálafell á Hellisheiði, mig var búið að langa lengi að ganga á það og ætlaði mér það í sumar en ekki varð af því. Sendi póst á hann og fékk að vera með, lögðum af stað frá Húsgagnahöllinni kl 9:00 og ókum beint upp á Hellisheiði, þegar við vorum kominn upp á heiðina fyrir ofan Skíðaskálann þá lögðum bílunum við þjóðveginn og gengum þaðan, mosinn var svo mikill og laus að það var þungt að ganga hann en gekk gangan samt vel :D
þetta er ágætis ganga og gekk okkur bara vel að komast upp, þegar þangað var komið var það allveg þess virði því útsýnið var frábært yfir suðurlandið, sáum við allveg austur að Eyjafjallajökli og var kominn smá snjór í hann :)
Settumst niður í smá matarpásu og héldum svo til baka, vorum komin að Húsgagnahöllinni aftur um hálf eitt eða svo :)
Aksturs og göngutími ca. 3 og 1/2 tími
Frábær ganga með frábæru fólki :)
Helgafellsmarkmiđi náđ :)Jóhannes Egilsson
Jæja þá var komið að því, ætlunin var að ná að ganga frá bílastæðinu við Helgafell, upp á topp á því og kvitta í bókina og niður aftur á innan við klukkutíma.
Bjössi kom til mín að horfa á Formúluna sem haldin var á Spa brautinni, lögðum af stað héðan rétt fyrir tvö og ókum uppeftir, lögðum svo af stað í gönguna þegar klukkan var tvær mínútur yfir tvö.
Farið var rólega af stað í þurru og góðu veðri (smá gola), hertum hægt og rólega á okkkur en eftir smá stund þá komu smá rigningarskúr, þegar við komum svo að Helgafelli (stígurinn nyrst við vörðuna) þá var haldið áfram án þess að stoppa og var tekið nokkuð þétt á því og náðum við upp á brún án þess að pása :-) héldum áfram og gekk ferðin mjög vel þó ég hafi fundið aðeins fyrir smá einkennum af hlaupasting, þegar að síðustu brekkunni kom þá var ekkert slegið af og bara tekið á því og var það mjög góð tilfinning að þurfa ekki að stoppa til að hvíla sig :-) þegar við loksins komum upp á topp þá höfðum við verið þrátíu mínútur og þrjátíu og tvær sek. að ganga á toppinn :-)
Skrifuðum í gestabókina og snérum strax niður aftur, nú var ekkert sparað og gangan gekk mjög vel, þegar við svo vorum í síðustu brekkunni þá stoppuðum við í um 10 sek til að hleypa fólki framhjá okkur sem var á uppleið :) til að ná upp þessum tapaða tíma var bara hert aðeins meira á sér og vorum við í góðum gír alla leið til baka :) þegar við loks komum að bílnum aftur þá vorum við búnir að vera fimmtíu og átta mínútur og nítján sek. :) frábær árangur og markmiðunu náð :)
Göngutími á topp 30:21 mín
Göngutími upp og niður 58:19 mín :-)
Esjan markmiđinu náđ :-)Jóhannes Egilsson
jæja þá náði ég því loksins í fjórða skipti, ná á topp þverfellshorns á innan við klukkustund :-)Bjössi sendi mér sms um þrjú leitið og spurði hvort ég væri til í að skella mér á Esjuna, vissi ég að það var kappganga til að ná að vera undir klukkutímanum á toppinn og var ég sko allveg til í það :-)
Bjössi var hjá mér um hálf sex og drifum við okkur uppeftir, gerðum okkur klára og var svo lagt í hann kl 17:51, hraðinn var kannski aðeins í meira lagi til að byrja með og hægðum við á okkur til að sprengja okkur ekki, gekk gangan vonum framan og ekkert sem truflaði, þegar við vorum komin að skilti 2 (eftir tröppurnar við hliðina á læknum) þá var klukkan 18:03 og hraðinn sem sagt ágætur, ekkert stoppað heldur haldið áfram og þegar við komum að skiltinu við brúnna þá var klukkan 18:08 og var ákveðið að fara brattari leiðina upp, vá þarna fór þetta að verða þungt undir fót en áfram var haldið, þegar við komum að síðustu brekkunni fyrir stein þá var ég farinn að finna fyrir smá einkennum hlaupastings þannig ég fór varlega en ekkert stoppað :-) upp að steini náðum við þegar kl. var 18:34 þannig við vorum 43 mínútur þangað upp sem er ágætis tími myndi ég segja. Við stoppuðum ekkert hjá steininum heldur héldum áfram, í þessari brekku var fyrsta hvíldarstoppið mitt til að ná andanum smá stund :-) Bjössi hélt áfram og ég lét hann nú ekki fara langt frá mér því ég ætlaði að vera á sama tíma og hann upp :-) lappirnar orðnar þungar og í klettunum þá þurfti ég næstum að lyfta þeim til að taka næsta skref :-/ en ekki stoppað bara haldið áfram :-) þegar við loksins náðum toppnum þá var klukkan 18:47 þannig við náðum að fara á Esjuna á 56 mínutum sem er bara frábær tími :-)
Niðurleiðin var svolítið öðruvísi, við prófuðum aðra leið niður klettana og var hún frekar laus og leiðinleg, fórum svo lengri leiðina niður og þegar við komum að brúnni þá hittum við fólk sem hafði verið rétt fyrir aftan okkur við steininn þannig það fer meiri tími í að ganga niður þá leið sem við fórum. Þegar við vorum komnir niður og búnir ða teigja þá var klukkan 19:57 þannig það tók okkur lengri tíma að ganga niður en upp :-/
Gönguvegalengd ca. 3 km
Göngutími upp 56 mínútur
Heildargöngutími rétt rúmir 2 tímar
